Vinir í viðskiptafræði í HR blogga
27.02.2008 00:46:28 / vidskiptavinir

Djammi er bróðir Atla (staðfest)


Ekki ósvipaðir þessir!!!! HALLÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓ

Þá er það orðið endanlega official, þetta kemur fólki náttúrlega lítið á óvart, en best er að hlusta á fréttina sem fylgir.
http://slytherin.hex.is/usercontent/tts/ragga/20080227/379fd74eb3179fd5b92b36820bf1b632.mp3

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 10:48:17 / vidskiptavinir

Sigga Bingó farin í hundana?

Þessar leiðinlegu myndir náðust af Siggu Oddsdóttur, dóttur athafnakarlmannsins Oddrúnar Láru Hafbjargardóttur, reykjandi gras á skólalóð Háskólans í Reykjavík í korterhlénu. Orðrómur hefur verið uppi um að Sigga sé endanlega farin í hundana og þykja þessar myndir staðfesta þann grun.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 10:44:24 / vidskiptavinir

Já fínt já sæll!!!!!!!!!!!!!

Margir hafa tekið eftir því að Sigríður Bingó og skunkurinn hafa verið að stinga saman nefjum á göngum skólans undanfarið, hefur verið leitt að því líkum að þau séu par, en Sigríður vísar því alfarið á bug að hún sé búinn að gifta sig, "við erum í opnu sambandi ég og skunkurinn" þannig er það langþægilegast.

 

Skunkurinn er að sjálfsögðu mjög flottur. 

L8R. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 10:09:15 / vidskiptavinir

Þá er komið að því að velja...!!! Jeeeiii..viðskiptavinir fagna!!! :-)

+

EÐA

++

 

hvort viljið þið svo elsku bestu viðskiptavinirnir mínir???!!!??! hvað sem við veljum (veit að þetta er erfitt val!!!) plííís munið bara eftir góða skapinu !!! :haha::haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 23:03:59 / vidskiptavinir

Björn Bragi í meðferð fyir jólin.

Eftirfarandi er msn spjall Björns Braga og Tóta T.

Þórarinn Tyrfingsson says: Komdu sæll Björn bragi

Björn Bragi says: Sæll Tóti

Þórarinn Tyrfingsson says: Er ekki kominn tími á að þú komir í meðferð

Björn Bragi says: U nei, hvað meinaru

Þórarinn Tyrfingsson says: Ég er búinn að tala við foreldra þína, og þau vilja að þú komir til okkar hérna á Vog

Björn Bragi says: Okei, Tóti, félagi! Það er ekki að fara að gerast.

Þórarinn Tyrfingsson says: En björn, minn, það er mikilvægt að þú komir hingað fyrir jól, svo þú hangir þurr um jól og áramót, það er mjög erfiður tími.

Björn Bragi says: Já ég meina, mér finnst bara fínt að djúsa og sprauta mig, á djamminu.

Þórarinn Tyrfingsson says: Jájá, það efast ég ekki um, en þetta er algjört helvítis kjaftæði þetta fyllerí og dóp á þér, nú hunskastu í meðferð, það eru líka rosa fínar baunasalats-samlokur hérna í drekkutímanu.

Björn Bragi says: Þegiðu Tóti, ég kem ekki neitt. Og mér er skítsama um baunasalatið, það er í fortíðinni.

Þórarinn Tyrfingsson says: Þá læt ég bara mína menn sækja þig.

Björn Bragi says: Já láttu þá bara gera það, svo er ég líka að setja upp söngleik með félaga mínum sem heitir Sprautan, og er byggð á ævi drottningarinnar Amy Winehouse.

Þórarinn Tyrfingsson says: Þá skulum við bara hafa það þannig, og við vitum nú báðir hvað hún er mikill vesalingur.

Björn Bragi says: Þið viljið senda mig í meðferð, en ég segi bara NEI NEI NEI, svo einfalt er það.

 

Viðskiptavinir bíða spenntir eftir því að sjá hvernig þetta mál fer.


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 13:44:44 / vidskiptavinir

Kveðja frá Tyrklandi

Hæhæ, Grazul hér, ákvað bara að henda inn lítilli kveðju svona þegar prófatörnin er að hefjast hjá ykkur viðskiptavinum, ég er hérna heima í Ankara, í brennandi 40 gráðu hita, rosa fínt.  Ég er farinn að vinna á Kebab stað hérna niðrí bæ, Ankara Döner heitir hann, annars var ég bara að spá í að kíkja á djammið hérna í kvöld, með Hazan félaga mínum.  Svo vil ég nota tækifærið og hvetja the sleeping Bacon til að fara að gera eitthvað í sínum málum , hún er aðeins að svíkja eina manneskju, og hún veit vel hver það er.

Annars enda ég þetta bara á orðum skáldsins áður en ég klæði mig í gallann og fer niðrí bæ að djúsa og djamma  " ég útá dansgólfið fer, þar ráða stelpurnar ríkjum, þar er allt fullt af flottum píkum!" vonum að það verði þannig í höfuðstað pelsanna í kvöld.

Hazan hikar ekki við að hringja í skvísurnar þó hann sé í vinnunni, hann er nú þegar búinn að kenna mér heilan helling af góðum pelsa trikkum.  Nota þau á ykkur þegar ég kíki á klakann, hehe. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 11:03:18 / vidskiptavinir

Til hamingju með afmælið Sleeping Bacon

Sigrún Edda Oddsdóttir, betur þekkt sem Sleeping Bacon ( áður Sigga Bingó ), heldur upp á afmælið sitt í dag. Sigrún er varaformaður aðdáendaklúbbs Bubba Morthens og af því tilefni var kóngurinn sjálfur fenginn til að troða upp í markaðsfræðitíma. Tók Bubbi lögin "Svínið og hafið", "Gott er að eiga Bacon" og "Konan sem borðaði skinkuna mína" við miklar og góðar undirtektir. Í tilefni af afmælinu mætti Sleeping Bacon uppástríluð í skólann og má sjá mynd af henni hér að ofan. Til hamingju með árin 21 frú Bacon. Megir þú aldrei verða uppiskroppa með svínaafurðir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 10:59:52 / vidskiptavinir

Endurfundir feðga

Eyfirðingurinn Hjalti Már Helgason hefur ástæðu til að kætast, en það kom í ljós í dag að knattspyrnugoðið og snilldin Helgi Sigurðsson er pabbi hans. Helgi og Hjalti hafa hingað til aðeins verið sessunautar, en nú hefur fengist úr því skorið að þeir eru líka feðgar.

Stjórn viðskiptavinia óskar þeim Hjalta og Helga til hamingju með áfangann og vonar að þeir eigi ófáar skemmtilegar pabbahelgar í vændum. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 17:07:01 / vidskiptavinir

Björn Bragi er með stórt hjarta

Seldi hundasúrur fyrir hundraðkall


Björn Bragi Arnarsson er með stórt hjarta. Hann vann sér inn 1.500 krónur með hundasúrusölu og gaf þær bágstöddum.

Hinn tuttugu og þriggja ára gamli Björn Bragi Arnarsson færði Akranesdeild Rauða kross Ísland gjöf á dögunum. Um var að ræða tæplega 1.500 krónur sem drengurinn hafði unnið sér inn með hundasúrusölu í sumar.

„Þetta byrjaði þannig að ég vissi ekki alveg hvað ég ætti að gera eftir mat. Ég nennti ekki að fara inn og ná í eitthvað þar þannig að ég fór bara í móann og tíndi hundasúrur," segir Björn Bragi um upphaf viðskiptanna. „Svo fór ég að selja þær til að ég gæti fengið peninga til baka og farið með þá í Rauða krossinn. En áður en þetta gerðist vissi ég aldrei hvað ég ætti að borða þegar ég var úti. Svo vissi Grazul, besti vinur minn frá Tyrklandi, að það væru til hundasúrur. Þess vegna borða ég hundasúrur í eftirmat, mér finnst þær svo súrar og góðar."

Upphaflega gekk Björn í hús og seldi hundasúrurnar en nýtti svo tækifærið á Írskum dögum á Akranesi þegar fólk í götunni hans safnaðist saman í svokölluðu götugrilli. „Næstum því allir keyptu. Þær kostuðu hundrað kall en sumir gáfu mér meira og aðrir minna. Það var svolítið gott af því þá var þetta ekki alltaf sama talan." Hann segist ekki hafa verið í vafa um hverjir ættu að fá ágóðann.

„Ég vildi gefa Rauða krossinum peninginn af því þá fá börnin sem eiga bágt pening frá mér. Börn í öllum heimsins löndum. Þá geta þau keypt sér föt og dót og mat," segir Björn Bragi og hlær þegar blaðamaður spyr hvort hann haldi að þau muni kaupa sér hundasúrur. „Nei, þau tína þær bara."


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 14:00:00 / vidskiptavinir

Hjónabandserjur í matsalnum

Uppi varð fótur og fit í matsalnum í HR í morgun, þegar Björn Bragi Arnarsson missti stjórn á skapi sínu, og reifst harkalega í símann fyrir framan fjölda manns. Talið er að Björn hafi átt í útistöðum við kærustu sínu, Önnu Reynisdóttur og var símtalið einhvern veginn á þessa leið:

"I was at the club with who?
get tha fuck...man, u know what
just because your friend say she saw me at a club with some other bitches
sitting in VIP smoking and drinking and kicking it, tell me girl

did she say there were other guys there?
did she say there were other guys there?
were there other guys there?
well, tell me this

alway accusing me of some old bullshit when Im just trying to have a good time
Björn you did this, Bjölls I heard you did that"

"what they eat dont make us shit
real talk"

Erfitt er að greina í þessa síðustu setningu Björns, en ljóst er af viðbrögðum fólks að dæma að uppákoman skaut fólki skelk í bringu. Leifur Geir Hafsteinsson, formaður Siðgæðisverndarráðs Háskóla Reykjavíkur, saðgi að ekki væri búið að taka ákvörðun um að víkja Birni úr skólanum, en bætti því þó við að staða Björns Braga væri ekki sterk eftir uppákomuna og hótaði jafnframt að hann fengi ekki 2,5% metinn fyrir könnun sem var lögð fyrir Björn í vikunni.

Sjálfur virtist Björn ekki skammast sín mikið fyrir uppákomuna í matsalnum og vildi lítið tjá sig um málið en sagði þó: "Í sjálfu sér átti fólk í kring ekkert að heyra þessar samræður, en þetta er kannski bara jákvætt að því leyti að þarna sér fólk hversu alvarlegir hlutirnir geta orðið þegar þú ert að rífast við stelpuna þína. Þetta er bara alvöru tal. Mannamál." Fróðlegt verður að fylgjast með framvindu málsins en ljóst er að framganga Björns mun lifa í minnum manna um ókominn ár.


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 10:50:26 / vidskiptavinir

Deyja fyrir klúbbinn.

Nú þegar klukkuna vantar 20 mínútur í ellefu, fyrsta dag októbermánaðar, og Björn Bráki er ekki mættur, er því slegið föstu að hann sé ekki lengur á meðal vor.  Eftir staðfestum heimildum er Hagbjörn talinn hafa hengt sig fyrir klúbbinn, rétt eftir miðnætti í gær, um það leyti sem hann uppgötvaði að hann kunni ekkert  í kafla 10,2 í hagnýtri stærðfræði.

Líkt og áður sagði er Björn sagður hafa gert þetta nær einvörðungu í þágu klúbbsins.

Björn lítur til ljósmyndara í þann mund sem          Krókurinn er ekki lítið glæsilegur 70.gráðu,

hann stekkur.                                                og fæst hjá Fastener Warehouse.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 09:22:29 / vidskiptavinir

Grímur svíkur Viðskiptavini

Júdas Helgi Gíslason hefur þegið 30 silfurpeninga frá Eyfirðingunum í Viðskiptafræðinni. Talið er að þessi svik hans séu staðfesting á því að hann muni yfirgefa Viðskiptavini í bráð. Ólafur Míó Ólafsson, leikmaður Viðskiptavina, var ómyrkur í máli þegar hann frétti af athæfi Gríms. "Ég er svo reiður að það sýður í mér brundið," sagði Ólafur. 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 08:27:18 / vidskiptavinir

Sigga Bingó fær sér hressingu

Sigríður Bingó Oddsdóttir, dóttir Ossa í Vinabæ, hefur ákveðið að skrópa í fjárhagsbókhaldi.
Sigríður hafði þetta að segja um málið; "Fórnarkostnaðurinn af því að mæta í þetta
helvítis fjárhagsbókhald er að fá mér skúnk fyrir utan kjúklingastaðinn í Suðurveri. Ég valdi
skúnkinn," sagði Sigríður, sem er forfallin hampreykingakona.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 02:53:24 / vidskiptavinir

Tvífarar

Tvífarar

                 

Atillo Lombardi                                            Bingó Bjössi


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 14:31:05 / vidskiptavinir

Vinabær býður í lunch,

"Er nokkur sjens að þú hafir pantað eftirrétt" sagði þjónninn á Aski við Bingó, og átti þá við risa eftirréttarhlaðborðið sem Sigrún Eðvarð, dóttir Ossa í Vinabæ, pantaði um leið og hún steig innum dyrnar á Aski.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
RSS tengill